Meltingarvegur hundsins

Þótt líffræði spendýra sé í grundvallaratriðum sú sama þá eru einstök atriði samt ótrúlega ólík. Þetta á ágætlega við um meltingarveg manna og hunda sem er annarsvegar eins í aðalatriðum en hinsvegar talsvert ólíkur varðandi einstök atriði.
Hjá mönnum byrjar meltingin í munninum. Við tyggjum matinn með því að hreyfa kjálkana til hliðar miðað við efri tanngarðinn og nudda jöxlunum saman. Þannig bæði smækkum við bitana í munnholinu og byrjum að blanda munnvatni með efnahvötum í matinn.
Hundar geta ekki hreyft kjálkana til hliðar og nota tennurnar til að klippa fæðuna niður í hæfilega bita áður en hún fer í magann. Auk þess inniheldur munnvatn hunda ekki efnahvata til að melta fæðuna þannig að eiginleg melting hefst ekki fyrr en í maganum.
Lengi býr að fyrstu gerð

Um hundarækt
Undanfarna daga hefur hundarækt og aðbúnaður hunda á Dalsmynni verið til umtals. Þetta er ekkert nýtt því svona hefur þetta verið annað veifið í meira en 10 ár. M.a. fór 50-60 manna hópur á staðinn með kröfuspjöld og mótmælti „hvolpaframleiðslu” í september 2003. Nú, eins og allan þennan tíma, er því haldið fram að aðstæður þarna séu „ómannúðlegar” og ekki í samræmi við reglur.
Þessu mótmælir ræktandinn og eftirlitsaðilar staðfesta að aðstæður séu í samræmi við lög og reglugerðir en að hundafjöldinn sé nokkuð mikill. Héraðsdýralæknir hefur vegna þessa verið sakaður um að skilja ekki þær reglur sem hann á að fara eftir.
AAFCO og merkingar á fóðri
AAFCO (Association of American Feed Control Officials) er amerísk sjálfseignarstofnun sem gefur út næringarefnastaðla fyrir heilfóður (complete feed) handa gæludýrum. AAFCO stundar bæði rannsóknir með dýrum og á rannsóknarstofum en hefur ekki aðkomu að lagasetningu eða opinberu eftirliti með innihaldi og merkingum fóðurs. Það er á ábyrgð yfirvalda í einstökum ríkjum BNA að lagaumhverfið og eftirlitið sé fullnægjandi til að tryggja öryggi neytenda. Í Evrópu...
Hundi út sigandi
Vonskuveður ríkir nú á suð-vesturhorninu, svo slæmt að undir venjulegum kringumstæðum væri hundi ekki út sigandi.
Þó tókst apótekara á sextugsaldri með klækjum að siga heimilishundinum Sófóklesi út, með því að sannfæra hann um að þar væri að finna myndarlegt og safaríkt kjötbein falið í burðarpoka hlaunamikillar og hægfara blaðburðarkonu.
Skemmst er frá því að segja að Sófókles fór fýluferð og var bæði rennblautur og þegjandi hás eftir dágóð og allhávær hlaup um hverfið. Kunni hann eiganda sínum litlar þakkir fyrir hrekkinn.
Hráfóður - BARF
Það er auðvelt að gagnrýna fóðrun með þurrfóðri og/eða blautfóðri eins og algengast er að hundar séu fóðraðir með vegna hráefnisins sem notað er og framleiðslu mátans. Þeir sem gera það vísa m.a. til þess að þegar hráefnið sem notað er til framleiðslu þurr- og blautfóðurs sé hitað í yfir 100°C í framleiðsluferlinu þá missi það mikið af næringargildinu. Meðal efna sem tapast séu bæði vítamín, hvatar, bakteríur og amínósýrur (prótein).

